
Fréttablaðið, 26. nóv. 2007 07:00
Ísafjarðar-Matador er jólagjöfin í ár
Háskólaneminn Páll Ernisson kann ekki að prjóna sokka í jólapakkana, og brá því á það ráð að búa til borðspil til að gefa vinum og vandamönnum.fréttablaðið/gva
Háskólaneminn Páll Ernisson leysti jólagjafavandamál ársins með því að búa til borðspilið Ísafjörður – einokun. „Hugmyndin er nánast eins stolin og hún getur verið," segir Páll og hlær við. „Fyrirmyndirnar eru spil á borð við Matador. Þetta snýst allt um fasteignabrask," útskýrir hann.
Páll er fæddur og uppalinn á Ísafirði, en stundar nú nám í landfræði við Háskóla Íslands. Þar sem fjármagn til jólagjafakaupa var af skornum skammti, eins og gjarnt er um með námsmenn, varð eigin framleiðsla ofan á.
„Ég kann ekki að prjóna, svo þetta kemur í staðinn," segir hann og hlær. Upphaflega var spilinu einungis ætlað að fara í jólapakka til fjölskyldunnar, en það verður einnig tekið til sölu í verslun systur hans, Blómaturninum á Ísafirði. „Hún er búin að taka niður tíu pantanir nú þegar, og ég er búinn að selja tíu spil," segir Páll, en 50 spila upplagið kemur út 1. desember.
Þó að hugmyndin sé ekki alveg ný af nálinni hefur Páll staðfært spilið svo það henti ísfirskum veruleika. Hættuspjöld vísa meðal annars í ísfirsku fegurðarsamkeppnina Óbeislaða fegurð, ísfirsk fyrirtæki styrkja spilið og göturnar eru að sjálfsögðu ísfirskar.
Verðlagning þeirra reyndist þó nokkuð snúin. „Ég var eiginlega hræddastur um að móðga pabba. Hann býr í Mjógötu, sem er ódýrasta gatan í spilinu. Honum finnst það hræðilegt," segir Páll og hlær við.
Hann vonast til þess að spilið verði jólagjöfin í ár. „Að minnsta kosti fyrir þá sem hafa ekki efni á að kaupa GPS tæki á línuna," segir hann glettnislega. - sun
2 comments:
Til hamingju með þenna bráðgáfaða og sniðuga kærasta, vonandi kemur þú eitthvað um jólin svo við getum nú hist og kannski grafið stríðsöxina....
kossar og knús
Hrafnhildur
Sniðugur hann ástmaður þinn :) Hlökkum til að hitta ykkur. Knús og kram og kossar!!!
Lísa
Sendu inn athugasemd