þriðjudagur, 18. desember 2007

jessssss!

Búin í prófum! Öll prófin gengu mjög vel. Eiginlega miklu betur en ég bjóst við. Það er nú bara svona að vera þetta klár! hehehe

Og nú mega jólin koma takk....




Það er samt eins gott að þessi snúi bara aftur til fjalla...


Næstu dagar fara í að blaðra við systur mína, knúsa litla frænda í tætlur, drekka rauðvín (orðin frekar þurr í kverkunum eftir hina þurru prófatíð), borða smákökur og versla jólagjafir!
Og já svo þarf ég víst að vinna 3 vaktir einhverntímann þarna á milli.
Og svo er það bara Akureyri og fjölskyldan mín.

Gaman gaman

1 comments:

Ofurhjúkka sagði...

Elsku Svava, gleðileg jól og hafðu það sem allra best yfir hátíðarnar. Pakkinn til ykkar fer til Palla....
Kossar og knús
Hrafnhildur