Sælt veri fólkið! Og gleðilegt nýtt ár og takk fyrir allt gaman og gott!
2007 bara búið og það var nú bara anskoti fínt ár:
-Ég flutti frá Húsavík rétt áður en árið byrjaði eftir að hafa búið þar í eitt og hálft ár.
-Ég byrjaði árið með trompi og skellti mér hringinn í kringum hnöttinn með kærastanum. Ferðin tók 4 mánuði með viðkomu í Englandi, Indlandi, Nepal, Tælandi, Kína, Hong Kong, Ástralíu, Nýja Sjálandi, Fiji, Bandaríkjunum frá Los Angeles til New york og allt þar á milli, Englandi og enduðum svo í Bjór hjá Freysa í Danmörku.
-Ég kom heim til Íslands og vann á Karolínu Restaurant í mánuð.
-Ég fór út til Lúxemborgar í mánuð til Lísu systur og það ringdi allan tímann.
-Ég vann sumarið svo út á Karólínu.
-Ég flutti loksins aftur á Hringbrautina.
-Ég byrjaði og kláraði fyrsta misseri í Ferðamálafræði við HÍ með glæsibrag ( 7.5 , 8 , 8.5 og 9).
Svona var árið.....
Er bara nokkuð ánægð með það!
Ný önn er byrjuð og hún leggst vel í mig. Fínir kennarar og skemmtileg fög.
Og vitiði að ég er bara alveg að fara að ná valdi á fingrasetningunni á tölvuborðinu... Hef einhvernveginn aldrei lært það. En að læra það er eitt af áramótaheitunum mínum. Það og auðvitað verður maður að lofa sjálfum sér að hreyfa sig meira... Svona eins og maður segir alltaf. Er allavega að synda og það á víst alltaf að vera erfiðast að byrja. Ég er byrjuð svo ég hlýt að vera búin með það versta.
Annað er að borga niður yfirdráttinn og það gengur bara vel. Það er ótrúlegt hvað maður á mikinn pening þegar maður er í háskóla! Húrra fyrir námslánum (verst að maður þurfi að borga þau til baka).
já og svo var það líka að sofa betur og ég er strax búin að redda því! Keypti mér nýtt rúm sem heitir IQ CARE og ekki veitir af meðan maður er í námi!
Heyrumst Svava
þriðjudagur, 15. janúar 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
0 comments:
Sendu inn athugasemd