sunnudagur, 25. október 2009

er þessi síða dauð?

já sææææææææl !

Ég held að það að blogga sé að deyja... En ég ætla samt að halda örlitlu lífi í þessari blessaðri síðu bara upp á gamanið!
Helst í fréttum?
Er á þriðja og seinasta árinu í ferðamálafræði og það gegnur vel þrátt fyrir að vera með yfirdrifið nóg af verkefnavinnu. Hver sagði að það væri æðislegt að vera í próflausum áföngum?
Er á fullu á æfingum í Stúdentaleikhúsinu. Leikstjórinn þessa önnina er Tinna Lind Gunnarsdóttir og lofar þetta allt saman þvílíkt góðu! Við frumsýnum eftir 2 vikur svo endilega fylgjast með og koma á sýninguna. (studentaleikhusid.is og stúdentaleikhúsið leikhús á feisinu)

Annars er ég svakalega hress og hlakka mikið til jólanna. Er á leiðinni til Þýskalands þá að hitta Lísu systur og familíuna hennar. Það er nefnilega nýr frændi að mæta á svæðið!

Kveðja Svava

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Nice fill someone in on and this fill someone in on helped me alot in my college assignement. Gratefulness you for your information.