já sææææææææl !
Ég held að það að blogga sé að deyja... En ég ætla samt að halda örlitlu lífi í þessari blessaðri síðu bara upp á gamanið!
Helst í fréttum?
Er á þriðja og seinasta árinu í ferðamálafræði og það gegnur vel þrátt fyrir að vera með yfirdrifið nóg af verkefnavinnu. Hver sagði að það væri æðislegt að vera í próflausum áföngum?
Er á fullu á æfingum í Stúdentaleikhúsinu. Leikstjórinn þessa önnina er Tinna Lind Gunnarsdóttir og lofar þetta allt saman þvílíkt góðu! Við frumsýnum eftir 2 vikur svo endilega fylgjast með og koma á sýninguna. (studentaleikhusid.is og stúdentaleikhúsið leikhús á feisinu)
Annars er ég svakalega hress og hlakka mikið til jólanna. Er á leiðinni til Þýskalands þá að hitta Lísu systur og familíuna hennar. Það er nefnilega nýr frændi að mæta á svæðið!
Kveðja Svava
sunnudagur, 25. október 2009
mánudagur, 9. mars 2009
Þöglir farþegar - Stúdentaleikhúsið
Jæja þá getið þið ákveðið hvenær þið viljið koma og sjá þessa frábæru sýningu!
Frums 14.mars
15. mars sunnud. 20:00
17. mars þriðjud. 20:00
20. mars - föstud - miðnætursýning
21. mars - laugard 20:00
24. mars - þriðjud 20:00
26. mars fimmtud. 20:00
28. mars - laugard. lokasýning 20:00
miðapantanir í síma 8678640
http://thoglirfarthegar.blogspot.com/
Knús
Frums 14.mars
15. mars sunnud. 20:00
17. mars þriðjud. 20:00
20. mars - föstud - miðnætursýning
21. mars - laugard 20:00
24. mars - þriðjud 20:00
26. mars fimmtud. 20:00
28. mars - laugard. lokasýning 20:00
miðapantanir í síma 8678640
http://thoglirfarthegar.blogspot.com/
Knús
miðvikudagur, 11. febrúar 2009
Allt að gerast!
Sæl öll sömul!!
Smá fréttir af mér.... Ég fékk hlutverk í Stúdentaleikhúsinu svo allir að mæta á sýningu í mars. Það er engin afsökun núna eins og seinast þegar það var svooooo langt til Húsavíkur!!
Átakið gengur vel. Fyrir þá sem ekki vita þá tók ég meðvitaða ákvörðun fyrir áramót, eftir samtal við lífsgúruinn hann pabba minn, að breyta lífi mínu. Hafði alltaf einhverja afsökun... eins og æi er ekki alveg tilbúin núna og annað eins en þarna ákvað ég bara að minn tími væri kominn... hahaha
Ég er semsagt í áfengisbindindi í 100 daga... var hálfnuð um daginn. Borða eftir danska kúrnum og stunda herþjálfun og jóga. Með öllu þessu skvetti ég slatta af sjálfsstyrkingaræfingum, eins og að hugsa ekki neikvætt og þannig lagað...
Og þetta er barasta að virka:) 3,5 kíló farin og líður bara svakalega vel. En að sjálfsögðu koma slæmir dagar og þá er um að gera að njóta þeirra líka bara!
Kveðja Svava
Læt vita þegar fólk á að mæta í leikhús!

miðvikudagur, 31. desember 2008
Árið 2008
Þetta ár hefur verið mjög viðburðaríkt! Bæði æðislegt og hrikalega erfitt. Ég er núna hálfnuð með námið mitt í HÍ, það er að segja hálfnuð með BS-inn... Ég skemmti mér svakalega vel um sumarið þar sem ég var mánuð á Akureyri, viku á Tanganum að veislustjórast fyrir vinkonu mína og svo meira en mánuð á Spáni hjá Kötlítu! Í september ákváðum við Palli að fara í sitthvora áttina en það var ein erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka. Það er alltaf erfitt að kveðja ástvini sína en lífið heldur áfram. Það má eiginlega segja að ég hafi voða lítið lært september og október enda þurfti ég mikið að vera með vinum mínum. Það kom niður á mér í nóvember og desember þar sem ég var örugglega meira uppi í Öskju heldur en heima hjá mér. En allt er gott sem endar vel og tvær níur komnar í hús af fjórum einkunnum. Er núna fyrir norðan á Akureyri þar sem ég hef verið að "laga til" og njóta lífsins frá 20. desember, Hef það svakalega gott og hlakka til að takast á við það sem árið 2009 hendir framan í mig:)
Gleðilegt nýtt ár kæru vinir og fjölskylda og takk fyrir allt það gamla!
Svava
Gleðilegt nýtt ár kæru vinir og fjölskylda og takk fyrir allt það gamla!
Svava
fimmtudagur, 27. nóvember 2008
Rakarastofan!
Ég fór í klippingu í gær! Mér finnst leiðinlegt að fara í klippingu. Það tekur alltaf allt of langan tíma, svona allskonar dúll sem mér finnst vera tímasóun. Svo þegar maður er sestur í stólinn og búinn að segja hvað maður vill þá kemur svona vandræðaleg þögn. Og svo kemur spurning dauðans: Og hvað ertu að gera?? Ohhh þoli ekki að þurfa að segja klippikonunni frá lífi mínu! Á þeim árum sem ég fór reglulega í klippingu þá var ég farin að spinna upp sögur til að sjá viðbrögðin!! Og ég ætla ekki að byrja að tala um verðið!
En semsagt fór í klippingu í gær. Og vegna þess hversu lítið ég þekki til hárgreiðslustofanna í Reykjavík þá pantaði ég óvart tíma á Rakarastofu. Ég mætti, settist í stólinn, sagði hvað ég vildi og fékk svo að þegja (eins og ég vil í klippingu) allan tímann... Rakarinn var stór og stæðilegur karlmaður sem var snöggur að þessu.. hmmm
Ég var komin og farin á hálftíma og borgaði 2900 krónur fyrir fína klippingu!
That´s the way I like it!

mánudagur, 24. nóvember 2008
Nýtt líf!!
Það er skrýtið hvernig heilt þjóðfélag getur breyst á einu augnabliki...
Núna er ég víst ein af þeim "heppnu"!!
Barnlaus, makalaus háskólastúdent sem á ekki neitt!!!
Núna er ég víst ein af þeim "heppnu"!!
Barnlaus, makalaus háskólastúdent sem á ekki neitt!!!
miðvikudagur, 22. október 2008
Mannamál!
SÓSÍALISMI
Þú átt 2 kýr.
Þú gefur nágranna þínum aðra þeirra.
KOMMÚNISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar og gefur þér mjólk.
FASISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar og selur þér mjólk.
NASISMI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar...og skýtur þig svo.
SKRIFRÆÐI
Þú átt 2 kýr.
Ríkið tekur þær báðar, skýtur aðra þeirra, mjólkar hina og hellir svo allri mjólkinni.
HEFÐBUNDINN KAPITALISMI
Þú átt 2 kýr.
Þú selur aðra þeirra og kaupir naut. Þú stofnar kúabú og hagnast vel. Þú hagnast vel, selur kúabúið og sest í helgan stein
SÚRREALISMI
Þú átt 2 gíraffa.
Ríkið krefst þess að þú farir í harmonikkunám.
BANDARÍSKA FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú selur aðra þeirra og þvingar hina til að gefa af sér mjólk á við fjórar kýr. Þú ræður svo sérfræðing til að komast að því hvers vegna hún datt niður dauð.
ÁHÆTTUFJÁRFESTINGAR
Þú átt 2 kýr.
Þú selur 3 þeirra til fyrirtækis á opnum markaði með veði í gervifyrirtæki mágs þíns, gengur svo frá yfirtöku með vísan í skráningu á markaði þannig að þú færð allar 4 kýrnar tilbaka og skattaívilnanir vegna einnar til viðbótar. Afurðarétturinn af kúnum 6 er færður yfir á fyrirtæki í Karíbahafinu, en leynilegur meirihlutaeigandi þess selur þér aftur réttinn að öllum 7 kúnum. Samkvæmt ársskýrslu á fyrirtækið nú 8 kýr, með eigendarétti að einni til viðbótar. Þú selur eina kú til þess að þóknast ónefndum stjórnmálamanni og átt þá níu kýr. Rétturinn að nautinu er seldur almenningi í hlutafjárútboði.
ÞÝSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú endurhannar þær þannig að þær lifa í 100 ár, éta einu sinni í mánuði og mjólka sig sjálfar.
KÍNVERSKT FYRIRTÆKI
Þú átt 2 kýr.
Þú ræður 300 manns til að mjólka þær. Þú segir atvinnuleysi í lágmarki og blómstrandi landbúnað. Þú handtekur fréttmanninn sem sagði frá stöðunni eins og hún er í raun og veru.
INDVERSKT FYRIRTÆKI
Þú átt tvær kýr.
Þú tilbiður þær.
BRESKT FYRIRTÆKI
Þú átt tvær kýr.
Báðar eru með gin-og klaufaveiki
NÝ-SJÁLENSKT FYRIRTÆKI
Þú átt tvær kýr.
Sú til vinstri er asskoti löguleg.
ÍRASKT FYRIRTÆKI
Allir virðast eiga fjölda kúa.
Þú segir öllum að þú eigir enga.
Enginn trúir þér svo þeir sprengja þig í tætlur og ráðast inn í landið.
Þú átt enn engar kýr, en þú býrð þó amk í lýðræðisríki núna...
Sæl öll.... ég er lifandi...
kveðja Svava

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)