miðvikudagur, 31. desember 2008

Árið 2008

Þetta ár hefur verið mjög viðburðaríkt! Bæði æðislegt og hrikalega erfitt. Ég er núna hálfnuð með námið mitt í HÍ, það er að segja hálfnuð með BS-inn... Ég skemmti mér svakalega vel um sumarið þar sem ég var mánuð á Akureyri, viku á Tanganum að veislustjórast fyrir vinkonu mína og svo meira en mánuð á Spáni hjá Kötlítu! Í september ákváðum við Palli að fara í sitthvora áttina en það var ein erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka. Það er alltaf erfitt að kveðja ástvini sína en lífið heldur áfram. Það má eiginlega segja að ég hafi voða lítið lært september og október enda þurfti ég mikið að vera með vinum mínum. Það kom niður á mér í nóvember og desember þar sem ég var örugglega meira uppi í Öskju heldur en heima hjá mér. En allt er gott sem endar vel og tvær níur komnar í hús af fjórum einkunnum. Er núna fyrir norðan á Akureyri þar sem ég hef verið að "laga til" og njóta lífsins frá 20. desember, Hef það svakalega gott og hlakka til að takast á við það sem árið 2009 hendir framan í mig:)

Gleðilegt nýtt ár kæru vinir og fjölskylda og takk fyrir allt það gamla!

Svava

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með níurnar :)
Og gleðilegt nýtt ár, vona að ég hitti þig oftar á nýju ári sætust

Lena sagði...

Gleðilegt ár skvís!

Nafnlaus sagði...

Gleðilegt nýtt ár og megi það verða þér hamingjuríkt og skemmtilegt :)