miðvikudagur, 11. febrúar 2009

Allt að gerast!

Sæl öll sömul!!
Smá fréttir af mér.... Ég fékk hlutverk í Stúdentaleikhúsinu svo allir að mæta á sýningu í mars. Það er engin afsökun núna eins og seinast þegar það var svooooo langt til Húsavíkur!!
Átakið gengur vel. Fyrir þá sem ekki vita þá tók ég meðvitaða ákvörðun fyrir áramót, eftir samtal við lífsgúruinn hann pabba minn, að breyta lífi mínu. Hafði alltaf einhverja afsökun... eins og æi er ekki alveg tilbúin núna og annað eins en þarna ákvað ég bara að minn tími væri kominn... hahaha

Ég er semsagt í áfengisbindindi í 100 daga... var hálfnuð um daginn. Borða eftir danska kúrnum og stunda herþjálfun og jóga. Með öllu þessu skvetti ég slatta af sjálfsstyrkingaræfingum, eins og að hugsa ekki neikvætt og þannig lagað...

Og þetta er barasta að virka:) 3,5 kíló farin og líður bara svakalega vel. En að sjálfsögðu koma slæmir dagar og þá er um að gera að njóta þeirra líka bara!

Kveðja Svava

Læt vita þegar fólk á að mæta í leikhús!

Engin ummæli: